Núna ættu allir að geta gætt sér á ommelettu eða hrærðum eggjum því „vegan“-egg eru greinilega það nýjasta nýtt. Á vef Heilsuhússins má finna uppskrift að gómsætum „vegan“-eggjarétti, meðfylgjandi er uppskriftin.
• 2 msk. VeganEgg
• 1/2 bolli ískalt vatn
• 1 tsk. kókosolía til að smyrja pönnuna
Aðferð:
1. Bræðið kókosolíuna á meðalheitri pönnu
2. Þeytið eða blandið „egg/duftið“ (innihaldið) þar til mjúkt og sameinað.
3. Hellið blöndunni á pönnuna („eggið“ á að krauma á pönnunni), byrjið strax að hræra í „egginu“
4. Hrærið reglulega í „eggjunum“ með sleif þar til þau eru stíf.
5. Vegan egg tekur lengri tíma að eldast en venjuleg egg, svo mælt er með að steikja og hræra í um það bil 6–8 mínútur þar til „eggið“ er fulleldað/þurrkað. Kryddið að smekk og njótið!
Á vef Heilsuhússins kemur fram að „vegan“-eggin fást í Heilsuhúsinu.