Kótelettur með magnaðri myntusósu

Kótelettur með myntusósu að hætti Ragnars Freys.
Kótelettur með myntusósu að hætti Ragnars Freys. www.laeknirinnieldhusinu.com/

„Og þessi uppskrift er einföld. Myntusósa er ljúffeng sósa sem bróðir minn kenndi mér að búa til. Hún er einstaklega fersk og lífleg á bragðið og passar vel með öllum mat – sérstaklega lambakjöti. Hún kitlar bragðlaukana en léttir þó um leið á hitanum. Finnist manni grænum chili í þessari sósu ofaukið er um að gera að sleppa honum, sósan ber ekki skaða af,“ skrifar ástríðukokkurinn Ragnar Freyr Ingvarsson meðal annars í sinn nýjasta pistil. Meðfylgjandi er uppskrift að kótelettum með myntusósunni góðu.

Fyrir sex

  • sex þykkar Barnsley-kótelettur
  • 3-4 msk. góð jómfrúarolía
  • salt og pipar

Myntusósa

  • 2 plöntur fersk mynta
  • 1 planta ferskt kóríander
  • handfylli steinselja
  • 2 stk. grænn chilipipar
  • 1 grænt epli
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 tsk. hlynsíróp
  • 1 msk. jógúrt
  • 2 msk. jómfrúarolía
  • ¼ tsk. worcestershire-sósa (Lea & Perrins)
  • ½ msk. indverskt nudd (nota má garam masala í staðinn)
  • salt og pipar

 Aðferð:

  1. Penslið kóteletturnar með jómfrúarolíu og saltið og piprið eftir smekk. 
  2. Það lekur auðvitað fita af lambinu. Gætið þess að kveikja ekki í. Ein til tvær mínútur á hvorri hlið dugar þegar hitinn er mikill.
  3. Setjið myntu, kóríander og steinselju í matvinnsluvél, ásamt grænum chili (kjarnhreinsuðum), hvítlauk og gróft hökkuðu epli (einnig kjarnhreinsuðu). Brytjið vandlega í vélinni. Blandið hlynsírópi, jógúrt og olíu saman við. Smakkið sósuna til með worcestershire-sósu, indversku nuddi og salti og pipar.
  4. Svo er bara að skreyta með smátt skorinni myntu og steinselju.

Pistil Ragnars má lesa í heild sinni hérna.

Ragnar mælir með þessu víni með kótelettunum. Þetta er Coto …
Ragnar mælir með þessu víni með kótelettunum. Þetta er Coto de Imaz Rijoa Gran Reserva frá 2008.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert