Tobba Marinósdóttir
Þessir fagurgrænu íspinnar eru hollir og fljótlegir í gerð. Íspinnar eru nefnilega tilvalin leið til að fá börn til að borða hollt hráefni á borð við lárperu.
1 væn og vel þroskuð lárpera
2 dl kókosrjómi eða venjulegur rjómi
1 dl fersk mynta
½ tsk. límónusafi
2 dl frosið mangó eða einn vel þroskaður banani
1-2 msk. hunang eftir smekk
Setjið öll innihaldsefnin í blandara og blandið uns silkimjúkt. Hellið blöndunni í íspinnamót og frystið yfir nótt. Ef skreyta á pinnana með myntu er gott að bleyta myntublað og raða þeim inn í íspinnamótið áður en blöndunni er hellt í mótið.