Besta hugmynd í heimi?

Nýr víntappi sem er um leið vínglas í yfirstærð hefur notið mikilla vinsælda á sölusíðunni amazon.com. Tappinn, sem hlotið hefur nafnið Guzzle Buddy, umbreytir vínflösku í stærðarinnar glas og kemur í veg fyrir að einhver seilist í „þína“ flösku. Slíkur tappi sást eftirminnilega í þáttunum Cougar Town en hefur síðan selst eins og heitar lummur.

wine-bottle-glass-guzzle-buddy-3

Glasatappinn er svo vinsæll að hann er uppseldur í augnablikinu en framleiðendur Guzzle Buddy biðja aðdáendur að tapa ekki gleðinni því von er á nýrri sendingu um miðjan nóvember. Tappinn kostar $ 14,49 og kemur í glæsilegum kassa með slagorðinu „Plug it and Chug it“ og „Pouring is boring“.

Unnendur glassins hafa bent á að ekki sé bara sé mun smekklegra að drekka úr glasastút heldur en beint af stút, heldur komi þetta einnig í veg fyrir að fólk sulli niður við að hella sér í glas. Svo sé bæði leiðinlegt að vera alltaf að hella í glas og það geti í raun valdið sinaskeiðabólgu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert