Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi kennir vinsæl námskeið í gerð jólakonfekts og góðgætis. Hér er ein af hennar auðveldu og vinsælu uppskriftum. Nánar má sjá um námskeiðin hér en næsta námskeið verður á Akureyri.
„Þetta dásemdarkonfekt er fullkomið til þess að njóta með vinkonum og skapa minningar á góðum kvöldstundum! Í marsípanmolana nota ég nóg af lífrænum vanilludropum og sætugjafa frá hlynsírópi en einnig má skipta því út fyrir hráan kókospálmanektar (raw coconutnectar).“
Marsipan:
2 bollar lífrænar möndlur án hýðis, malaðar (500 ml)
4 msk. hlynsíróp eða hrár kókospálmanektar
1 msk. lífrænir vanilludropar
Súkkulaðikrem:
4 msk. kakó
1/4 bolli kókosolía
4 dropar stevia
Til þess að falleg hvít áferð náist er mikilvægt að nota afhýddar möndlur. Ef þær fást ekki keyptar er auðvelt að leggja möndlur með hýði í bleyti í 8 klst eða yfir nóttu, skola svo af þeim, kreista hýðið af og þerra örlítið. Byrjið á að mala afhýddu möndlurnar í blandara eða kaffikvörn í fínt mjöl. Bætið sætugjafa og vanilludropum saman við þar til þétt marsípandeig myndast. Notið fingur til að mynda kúlur.
Útbúið súkkulaði með því að hræra öllu saman í blandara eða potti. Mikilvægt er að kókosolían sé í fljótandi formi hvort sem kókosolíukrukkan er lögð í heitt vatnsbað eða brædd í potti. Einnig má kaupa dökkt súkkulaði t.d. sætað með steviu og bræða í potti.
Dýfið marsípankúlunum í súkkulaðið (ég nota skeið og fingur) og rúllið strax upp úr pistasíuhnetum eða kókosmjöli. Setjið á disk og geymið í kæli í hálftíma áður en þær eru borðaðar.