Að þrífa ísskápinn er nauðsynlegt en hefur takmarkað skemmtanagildi. Reynst hefur vel að gera það í fimm þrepum til að þrífa hann markvisst og á sem skemmstum tíma en viðurkennast verður að það eru engar töfralausnir í þessu leiðigjarna verkefni. Hreinn ísskápur kætir þó vissulega hjarta snyrtipinnans og gerir allt mun girnilegra. Subbulegur ísskápur getur hæglega sundrað samböndum ... eða komið í veg fyrir að draumaprinsinn eða prinsessan svari næsta stefnumótaboði! Gamalt húsráð við að velja sér maka sagði einmitt, kíktu inn í ísskáp og sjáðu sálina! Er þá átt við að það geti allir komið vel fyrir út á við en ísskápurinn segi til um hvort fólk sé skipulagt, snyrtilegt og hugsi vel um heilsuna. Myglaður ísskápur með harðri skinku, kóki og útrunninni g-mjólk er til dæmis ekki heillandi (byggt á sönnum atburðum).
Um leið og ísskápurinn er þrifinn er gott að renna yfir skipulagið í ísskápnum og athuga hvort eitthvað megi ekki betur fara.
1 - Takið allar vörur út úr ísskápnum og lesið utan á þær. Hendið því sem er útrunnið!
2 - Fjarlægðu allar hillur og skúffur. Setjið það sem kemst í uppþvottavélina. Stærstu hlutina má setja í baðið eða sturtuna, spreyja með sótthreinsandi efni og skrúbba svo með uppþvottabursta og þurrka.
3 - Spreyið ísskápinn að innan með hreinsiefni sem inniheldur fituuppleysandi efni. Það má vel nota vatnsblandaðan uppþvottalög.
4 - Gott er að nota matarsóda á erfiða bletti svo sem dökkar rákir. Varist þó að nota matarsóda á fleti með háum glans því hann virkar eins og sandpappír sé mikið nuddað með honum. Einnig má skilja matarsódann eftir á erfiðum blettum í klukkustund til að minnka nuddið.
5 - Þurrkið ísskápinn að innan með hreinni tusku og setjið allar skúffur og hillur á sinn stað. Gott er að setja hálfa sítrónu í miðjan ísskápinn og leyfa henni að dúlla sér þar í sólahring til að fá ferskan ilm. Sé föst sterk lykt í ísskápnum getur verið áhrifaríkara að setja kaffiduft eða matarsóda í opið ílát en það dregur í sig lykt. Sama gildir um opinn lauk – en fæstum finnst lauklykt góð svo laukurinn er örþrifaráð!