Gleðilegt sumar kæru lesendur. Ég gaf nýverið út ansi sumarlega og sæta matreiðslubók sem heitir Náttúrulega sætt en aðeins er notast við náttúrulega sætu á borð við ávexti í bókinni. Sykurlaust er því í þeim skilningi að ekki er um viðbættan sykur að ræða heldur sætt hráefni sem inniheldur einnig vítamín og næringu og nýtist því kroppnum betur en hefðbundinn sykur. Stundum sting ég upp á stevíu, hunangi eða döðlusírópi en því má sleppa ef vill.
Ég bauð upp á döðlugott úr bókinni í útgáfuveislunni sem er ein vinsælasta uppskriftin úr bókinni. Gestirnir kláruðu vel á annað hundrað bita svo nokkuð ljóst er að döðlugottið var ásættanlegt og ég hef fengið margar ábendingar um vel heppnaðan „bakstur“ í kjölfarið í eldhúsum landsins.
Botn
300 g mjúkar döðlur
2 dl kókosolía
Sjávarsalt
Góð vanilla – duft eða dropar
1 msk. ósætt kakó
75 g kínóapuffs (má einnig nota sykurlaus granóla)
Millilag – eitthvað af eftirfarandi. Ég nota 2-3 tegundir
Rúsínur
Kókosflögur
Goji-ber (geggjað)
Salthnetur
Kakónibbur
Möndlur
Valhnetur
Pekanhnetur
Heslihnetur
Örlítið salt
Bráð
120 g hnetur- eða möndlusmjör
80 g kakósmjör
80 g ósætt kakó – má vera minna ef þú vilt ekki mjög dökkt súkkulaði
Salt á hnífsoddi
2-3 msk. hunang (ef þú ert ekki alveg sykurlaus) eða 30 dropar karamellustevía eða 3 msk. döðlusíróp (niðursoðnar döðlur) – má sleppa en þá er súkkulaðið alveg ósætt.
Leiðbeiningar
Botn
Bráð