Hættu að grilla sömu kóteletturnar og flippaðu smá með okkur á Matarvefnum í sumar. Við ætlum að kenna þér að grilla allskonar gúmmelaði og jafnvel færa okkur á ævintýralegri nótur á komandi vikum. Við byrjum á pítsahálfmánum sem eru tilvaldir í Eurovisionpartýið.
Það sem þú þarft:
- Eina uppskrift af Krakkapizzudeigi (sjá hér að neðan)
- Eina uppskrift af Krakkapizzusósu (sjá hér að neðan)
- 120 g af Mozzarella osti
- 120 g af rifnum Cheddar osti
- Pepperóní – í sneiðum
- Extra virgin ólíu olía
Krakkapizzudeig
- 240 ml volgt vatn
- 2 tsk þurrger
- 1 msk sykur
- 1 msk ólífuolía (eða grænmetisolía)
- 300 g hveiti
- ¼ tsk salt
Aðferð:
- Setjið vatn, ger og sykur í stóra skál. Hrærið saman og látið bíða í 5 mínútur.
- Blandaðu olíunni saman við og hrærðu létt í.
- Blandaðu hveitinu og saltinu saman við og hnoðið þar til deigið er orðið þétt og fínt.
- Setjið viskustykki yfir deigið og látið það hvíla í 10 mínútur.
Krakkapizzusósa
- 1 dós af niðursoðnum tómötum í bitum
- 1 dós (lítil) af tómatpaste
- 2 hvítlauksgeirar
- ½ tsk salt
- Nýmalaður pipar
- 5 stór basillauf
Aðferð:
- Setjið hráefnin í blandara og blandið uns sósan er tilbúin.
- Grillaður hálfmáni
- Skiptu deiginu í tvennt.
- Flettu hvora deigkúlu út í hring. Hún ætti að vera á stærð við 12 tommu pizzu.
- Settu hvort deigið fyrir sig á smjörpappír eða á pizzuplötu.
- Settu sósuna á.
- Sáldraðu ostinum yfir.
- Settu pepperóní ofan á ostinn.
- Sáldraðu örlitlu af osti í viðbót.
- Penslaðu brúnirnar á deiginu með vatni.
- Brjóttu deigið í tvennt og þrýstu brúnunum vel saman með gaffli.
- Settu háflmánann á bökunarplötuna.
- Slettu smá olíu yfir hálfmánann.
- Settu hálfmánann á grillið og láttu pensluðu hliðina snúa niður. Passaðu að hafa ekki mikinn hita á grillinu og leyfðu hálfmánanum að eldast í 5 mínútur eða svo. Penslaðu hliðina sem snýr upp með olíu áður en þú snýrð hálfmánanum.
- Taktu af grillinu og láttu hálfmánann kólna í smá stund. Hann getur verið heitur og því mikilvægt að einhver fullorðinn smakki áður en börnin bíta í.