Það þarf ekki að vera flókið til þess að vera „heimagert“ og laust við viðbættan sykur og óþarfa efni. Þessi marinering er einföld og fljótleg og steinliggur í hvert skipti. Ég hef bara sett hana á kjúkling en hún myndi án efa henta einnig á fisk.
1 msk. tandoori-krydd
3 msk. mangómauk (smoothie eða frosið maukað mangó)
2 msk. appelsínusafi
1/2 hvítlaukur saxaður
Allt sett saman í skál hrært vel saman.
Herlegheitin fara svo í poka með 400 g af kjúklingabringum eða lundum og látið marinerast í að lágmarki klst. eða yfir nótt.
Gott er að grilla eða ofnbaka kjúklinginn eða þræða hann upp á grillpinna og bera fram með myntu-jógúrtsósu.
Ábending! Ef þú átt ekki grillpinna má vel nota trjágreinar. Hvort sem er, er mikilvægt að leggja pinnana/greinarnar í vatnsbað svo þeir séu ekki of þurrir og brenni.