Grillaðar pizzur eru stórkostleg uppfinning. Brauðið verður sérlega stökkt og gott auk þess sem grillkeimurinn smýgur í gegn sem gerir bragðið algjörlega truflað.
Það er því ekki að ástæðulausu sem við birtum þessa uppskrift enda fara hér saman nokkrar stórsleggjur í matargerð. Fíkjur og gráðost þarf vart að kynna og sultaður laukurinn stendur alltaf fyrir sínu. Þetta er því eins skothelt og hugsast getur og við segjum því bara: Verði ykkur að góðu!
Grilluð pizza með fíkjum, gráðosti og sultuðum lauk
- 1 rauðlaukur, skorinn í þunna hringi
- 2 msk. ólífuolía
- ögn af salti
- 2 msk. balsamik edik
- ögn af pipar
- 1 tsk. sykur eða hunang
- 450 gr. pizzudeig, skipt í tvo eða fjóra hluta
- 1 hvítlauksgeiri, maukaður
- 1 bolli rifinn mozzarella
- 1 bolli mulinn gráðostur
- 8 fíkjur, skornar í ferninga
- handfylli af klettasalati
Aðferð:
- Hitið ofninn í 220 gráður eða setjið grillið á (eða kveikið upp í kolunum).
- Látið deigið hvíla á hveitilöguðu yfirborði í 20 mínútur.
- Í stórri pönnu skal steikja laukinn í olíunni á meðalháum hita í 3 mínútur. Hrærið stöðugt í. Lækkið hitann og saltið. Haldið áfram að steikja laukinn í 10 mínútur eða svo eða þar til laukurinn fer að „karamellast“ og mýkjast. Bætið þá við balsamik-ediki, sykri og pipar. Eldið í 3-4 mínútur til viðbótar uns vökvinn hefur soðið töluvert niður. Setjið til hliðar.
- Skiptið deiginu upp í 2-4 hluta og fletjið út.
- Ef þið ætlið að grilla deigið skulið þið setja það beint á heita grindina og grilla í 2-3 mínútur eða þar til komin eru falleg grillför. Snúið þá við og grillið á hinni hliðinni. Ef baka á pizzuna mælum við með að þið forbakið deigið fyrst og setjið síðan áleggið ofan á.
- Nuddið maukaða hvítlauknum á pizzubotnana. Skiptið ostinum í tilhlýðilegan fjölda og setjið á pizzurnar, setjið fíkjurnar og laukinn ofan á og setjið aftur á grillið eða í ofninn til að klára eldunina.
- Þegar pizzurnar eru tilbúnar skal bera þær fram en skellið fyrst smá klettasalati yfir þær.
Heimild: Feasting at Home
Ljósmynd: Feasting at Home
Ljósmynd: Feasting at Home