Landsliðskokkurinn Kara Guðmundsdóttir mætir í þriðja þátt Grillað með Tobbu og kennir þar réttu handdtökin við meðferð og grillun nautakjöts. Hún ákvað að grilla rib-eye-steik og gera bernaise-sósu eftir kúnstarinnar reglum. Meðfylgjandi er jafnframt uppskrift að bernaise-krafti en það er nauðsynlegt að laga einn slíkan að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Þrátt fyrir að ekki hafi viðrað vel undanfarið til utandyraeldmennsku má halda í vonina um að það breytist og þá er eins gott að vera tilbúinn.
Kara er sem áður segir liðsmaður í íslenska kokkalandsliðinu en slíkt þykir alla jafna mikil upphefð. Það voru því sönn forréttindi fyrir Matarvefinn að fá Köru í þáttinn og við mælum að sjálfsögðu með að þið klippið út þessa uppskrift og límið kirfilega inn í uppskriftabókina.
Bernaise-essense/kraftur
- 75 gr. hvítvínsedik
- 75 gr. rauðvínsedik
- 4 stk. piparkorn
- 1 stk. shallot-laukur
- 4 stk. piparkorn
- ½ chilli rauður
Aðferð
- Svitið laukinn og chilli í potti
- Bætið edikinu út í ásamt piparnum og sjóðið niður um 2/3
- Kælið
Bernaise-sósa
- 6 stk. eggjarauður
- 250 gr. ósaltað smjör
- 1 msk. þurrkað fáfnisgras
- ½ tsk. salt
- 2 msk. bernaise-essense
Aðferð
- Bræðið smjörið í potti yfir mjög lágum hita.
- Þeytið eggin yfir vatnsbaði og passið að hitinn fari ekki yfir 80°C og að eggin eldist ekki í botninum.
- Takið eggin af hitanum og hellið smjörinu rólega við og hrærið allan tímann. Passa þarf að skilja hvíta vökvann í botninum.
- Bætið fáfnisgras út í og smakkið svo til með bernaise-essense og salti.
Sætar kartöflur
- 1stk. sæt kartafla
- 2 msk. repjuolía
- 1 tsk. salt
- 1 tsk. svartur pipar
Aðferð
- Skerið sæt kartöfluna í 3 cm þykkar sneiðar
- Pennslið með olíunni og raðið á bakka til að strá saltinu og piparnum jafnt yfir.
- Setjið á volgari flötinn á grillinu svo að kartaflan brenni ekki.
- Grillið í u.þ.b. 10 mín. á hvorri hlið (eldunartími fer eftir stærð og þykkt)
Nauta rib-eye
- Takið kjötið úr kæli klukkutíma fyrir eldun.
- Leggið kjötið á grillið í mjög heitum stað og EKKI hreyfa við því fyrr en þú snýrð því við!
- Grillið í 3-5 mín. á hvorri hlið (eldunartími fer eftir þykkt bitans)
- Takið kjötið af grillinu og vefjið því í álpappír þar sem það hvílir í 15 mínútur. Það að hvíla kjötið er jafnmikilvægt og að grilla það, þannig að biðin er klárlega þess virði.
Steikt brokkolí
- 1 stk. brokkolíhaus
- 75 gr. smjör
- salt
- ½ grilluð sítróna
- 2 msk. repjuolía
Aðferð
- Hitið pönnu og setjið olíuna á.
- Raðið brokkolíinu þannig að hver biti snerti pönnuna.
- Setjið klípu af salti á pönnuna.
- Þegar brokkolíið er orðið gullinbrúnt skaltu snúa því við og bæta smjörinu við.
- Passið að pannan sé heit svo að smjörið freyði. Færið bitana efst á pönnuna.
- Bætið sítrónunni við og hallið pönnunni að ykkur þannig að smjörið sé neðst og brokkolíið og sítrónan efst. Notið skeið til að hella smjörinu yfir hráefnið í 20 sekúndur.
- Takið af hitanum.