Ekki heilsudrykkur heldur nýjasta æðið

Fagurgrænn og ferskur sumardrykkur sem slegist er um.
Fagurgrænn og ferskur sumardrykkur sem slegist er um. Mbl.is/TM

Á veitingahúsinu MATBAR geisar sérlegt kokteilæði og virðast viðskiptavinir staðarins ekki fá nóg af þessum fagurgræna kokteil. Við fyrstu sýn virðist þetta vera hollustudrykkur en ó nei, þetta er vel áfengur gúmmelaðidrykkur sem er virkilega bragðgóður! Basilgranítan ku vera leynivopnið í drykknum góða.

Basil Gobernator

45 ml Pisco (fæst í Vínbúðinni og er ósætt brandí)
30 ml Lime safi
2-3 msk.
Basil graníta – sjá hér að neðan 

Glas: Old Fashioned
Garnish: Pipar

Kælið old fashioned glas með klaka. Bætið öllu innihaldi fyrir utan sódavatn í kokteilhristara og hristið. Sigtið í glasið og fyllið upp með smá sódavatni. Hrærið varlega í og stráið pipar yfir. 

Basil graníta

Hráefni

Aðferð

  • 300 g sykur
  • 700 ml vatn
  • 350 g basil
  • 50 g mynta
  • sítrónusafi
  • Sykur og vatn brætt saman og kælt niður
  • Allt unnið saman í blandara og síðan sigtað
  • Smakkað til með sítrónusafa
  • Sett í frost í góðu íláti
  • Tekið út a 30 mín. fresti og hrært í til að mynda krapið
mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert