Gísli Matthías Auðunarson, matreiðslumaður á Slippnum í Vestmannaeyjum, á heiðurinn af þessari guðdómlegu humarsúpu sem svíkur engan.
Humarsúpa Slippsins
- 1,2 kg humarklær - muldar (eða humarskeljar)
- 5 laukar
- 30 g hvítlauksgeirar
- 100 g sellerí
- 50 g tómat-paste
- 1 stjörnuanís
- 1 tsk fennelfræ
- 1 tsk hvítur pipar
- 1 tsk kóríanderfræ
- ½ stk cayenne
- 5 g sjávarsalt
- 200 ml hvítvín
- 5 l vatn
- sítrónusafi
- 500 ml rjómi
- 500 ml nýmjólk
- 500 g smjör
Aðferð:
- Setjið humarklær í ofnskúffu og ristið við 180°c í 25 mín. Laukar og hvítlauksgeirar eru saxaðir og settir í pott. Allt fræ og krydd mulið og sett með og leyft að krauma með tómatþykkninu.
- Svo er ristuðu humarskeljunum bætt út í og hvítvínið með. Soðið niður þar til hvítvínið er nánast horfið. Þá er bætt vatni við. Soðið kröftuglega í 1 klst. Allt sigtað frá og soðið niður um helming.
- Svo er rjóma, mjólk og smjöri bætt við og gott er að mixa hana með töfrasprota á þessu stigi.
- Súpan er svo smökkuð til með aðeins meira af sjávarsalti og sítrónusafa, einnig má bæta við meira af cayennepipar ef áhugi er fyrir.
Steinseljuolía
- 150 g steinselja
- 250 g repjuolía
Sett saman í blandara og unnið í u.þ.b. 15 mín. á hæsta hraða, eða þar til hún verður heit. Því næst sigtað í gegnum fínt sigti. Geymist í kæli í eina viku.
Súpan er lögð þannig upp:
Humarhalar eru steiktir upp úr hvítlauk og smjöri og settir á diskana, því næst örlítið af þeyttum rjóma og ein tsk af steinseljuolíunni með. Því næst er súpunni hellt yfir.