Ef þetta er ekki hin fullkomna grillmáltíð þá vitum við ekki hvað. Hér eru nautaspjót þrætt upp á spjót en hæglega má skipta nautinu út fyrir lamb og er það alls ekki síðra. Chimichurri sósan er síðan argentínsk sósa sem setur svo sannarlega punktinn yfir i-ið.
Grilluð nautaspjót með reyktri chimichurri sósu
- 900 g nautakjöt - lund, rib-eye eða sirloin - skorið í 4 sm ferninga
- 30 ml olía
- 30 ml lime safi, geymið einnig börkinn af einni límónu
- 2 hvítlauksgeirar, fínt saxaðir
- 1 tsk laukduft
- 1 tsk oregano duft
- 1 tsk cumin
- 2 tsk salt
- ½ tsk pipar
- Cherry tómatar og sætir laukar (e. sweet onions)
Chimichurri sósa
- 1 búnt sílantró
- 120 ml ólívuolía
- 30 ml limesafi
- 1 jalapeno
- ½ bolli laukur, smátt skorinn
- 1 hvítlauksgeiri
- 1 tsk kóríander
- ½ tsk reykt paprikuduft
- ½ tsk salt
Sílantró hrísgrjón
- 2 bollar vatn
- 1 bolli hrísgrjón, vel skoluð
- Salt á hrífsoddi
- ¼ bolli sílantró, saxað
- ½ bolli vorlaukur, saxaður
- 1 límóna
- Til skreytinga: Límónubátar og saxað sílantró
Aðferð:
- Leggið 8 löng spjót í bleyti í volgu vatni.
- Skerið kjötið í ferninga og setjið í poka eða í meðalstóra skál.
- Blandið saman olíu, lime safa og berki (rifnum), kryddi, salti og pipar í litla skál. Hellið yfir kjötið og lokð pokanum. Hristið pokann þannig að allt kjötið sé vel þakið kryddlegi. Leggið til hliðar.
- Hitið grillið.
- Setjið vatn og hrísgrjón í meðal stórann pott og látið suðuna koma upp. Lækkið undir og látið sjóða í 20 mínútur.
- Á meðan hrísgrjónin sjóða skal gera Chimichurri sósuna.
- Setjið öll hráefnin sem eiga að fara í sósuna í blandara og blandið í 10 sek. eða þar til silantróið og laukurinn eru orðin vel maukuð. Sósan má vera dáldið „kekkjótt“ en ekki meira en eðlilegt gæti talist með pestó. Setji í litla skál og setjið til hliðar.
- Þræðið spjótin með kjöti, tómötum og lauk til skiptis: Kjöt, tómatur, kjöt, laukur, kjöt o.s.frv. þar til spjótið er fullt. Það ættu að vera 3-4 bitar af kjöti á hverju spjóti.
- Grillið spjótin á meðal háum hita og fylgist vel með þeim og hreyfið þau til reglulega. Grillið þau þar til kjötið er orðið eins og þið viljið hafa það.
- Setjið hrísgrjónin í skál og kreistið límónuna yfir og dreyfið sílantróinu og vorlauknum yfir.
- Berið fram með spjótunum og Chimichurri sósunni.
Ljósmynd: Feasting at Home
Ljósmynd: Feasting at Home