Hlemmur mathöll opnaði í dag, laugardag kl 12. Ljósmyndari Matarvefsins kíkti við í gær og fékk að mynda á lokametrum undirbúningsins. Mikil stemming var á staðnum og eigendur spenntir fyrir opnuninni.
Alls verða tíu staðir með aðstöðu í höllinni og verða sjö þeirra eru opnir í dag. Það eru það taco-staðurinn La Poblana, víetnamski staðurinn Bánh Mí, Rabbarbarinn, Te & kaffi, Kröst, Ísleifur heppni og Jómfrúin. Hinir staðirnir verða opnaðir fljótlega ef allt gengur að óskum.
Mathöllin er hin glæsilegasta og þar finna flestir goutmet-unnendur eitthvað við sitt hæfi. Í tilefni Menningarnætur er svo skemmtileg dagskrá í Mathöllinni sem sjá má hér.