Það er nauðsynlegt að fá sér almennilega í gogginn um helgina og þá er eitthvað svo viðeigandi að fá sér góða lambasteik.
Hér gefur líta að uppskrift að lambainnlæri sem engan svíkur og ætti að koma öllum í sannkallað jólaskap.
Steikt lambainnlæri með pestó og ristuðu grænmeti
- 400 g lambainnlæri
- 3 msk. olía
- 8 litlar kartöflur, skornar í tvennt
- 1 rauðlaukur, saxaður gróft
- 3 gulrætur miðlungstærð, skornar í tvennt
- 1 hvítlauksgeiri
Pestó
- 40 gr. ferskt basil
- 25 gr. furuhnetur
- 25 gr. parmesan-ostur
- 80 ml ólífuolía
- 1 hvítlauksgeiri
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200 °C. Brúnið kjötið á pönnu í tvær mínútur á hvorri hlið og setjið á bakka ásamt grænmetinu. Steikið í ofni í 30 mín., takið úr ofni og hvílið í 10 mín. Berið ríflegt magn af pestó á kjötið áður en það er borið fram.
- Fyrir pestógerðina. Blandið öllu saman í matvinnsluvél og smakkið til með salti og svörtum pipar.