Góð steik er gulli betri og í aðdraganda aðventunnar er sérlega viðeigandi að gæða sér á gómsætu lambakjöti. Þessi uppskrift er algjört æði. Hún er skemmtilega hefðbundin en samt algjörlega öðruvísi. Ef þig langar að slá í gegn þá býður þú upp á þessa perlu.
Grilluð lambasteik með sesam og appelsínu
- 200 g lambasteik
- 2 msk. sesamolía
- 1 msk. sesamfræ
- 1 appelsína, börkur og safi
- 1 msk. ostrusósa
- 1 romaine-salathaus
- ½ appelsína
- 3 msk. chili-olía
Aðferð:
- Blandið kjöti ásamt sesamolíu, sesamfræjum, appelsínuberki, appelsínusafa og ostrusósu og marinerið í a.m.k. 10 mín. Grillið eða steikið í 2 mín. hvora hlið.
- Skerið romaine langsum, penslið með chili-olíu og grillið í u.þ.b. 1 mín. á hvorri hlið. Skerið appelsínu í báta, penslið með olíu og grillið í 2 mín. á meðalhita.