Við höfum einstaklega gaman af því að færa ykkur fréttir af ævintýrakokkinum Kristó sem heldur uppi almennri starfsgleði hjá Árvakri. Í dag var boðið upp á þennan tímamóta saltfiskrétt og var ánægjan svo mikil meðal starfsmanna að við gátum ekki annað en fengið uppskriftina hjá heilögum Kristó til að lesendur Matarvefjarins gætu tekið þátt í gleðinni.
Í yfirheyrslu slumpaði Kristó markvisst á innihaldið en þetta lætur nærri lagi.
Sósaður saltfiskur með rjómaosti
- Léttsaltaður þorskhnakki 500 g
- 6 msk. hveiti
- 1/2 tsk. pipar
- 1 tsk. óregano
- 1 tsk. basil
- 3 vænar kartöflur, soðnar og skornar í þunnar sneiðar
- 1 - 2 dl ólífur (grænar og svartar)
- 3 msk. rjómaostur
- 100 g rifinn ostur
- 2 msk. olía
Sósa:
- 1 laukur, saxaður
- 1 hvítlaukur, saxaður
- 2 dósir hakkaðir tómatar
- 1 msk Ítalskt krydd
- olía
Aðferð:
- Hitið ofninn í 220 gráður.
- Sjóðið kartöflurnar.
- Veltið fiskinum upp úr hveiti, pipar, óreganó og basil og setjið í ofnfast mót, skvettið olíunni yfir og bakið inni í ofni í 10 mínútur.
- Skerið kartöflurnar í þunnar sneiðar og setjið út á fiskinn.
- Sósa: Skerið allt saman niður. Steikið laukinn og hvítlaukinn fyrst upp úr olíu og setjið síðan afganginn saman við og látið malla í klukkustund.
- Hellið sósunni yfir og loks skreyta með ólífum og rifnum osti. Til hátíðarbrigða skal setja nokkrar dúllur af rjómaosti yfir.
- Lækkið hitan á ofninum og bakið í ofninum á 180 gráðum í 20 mínútur eða þar til osturinn er orðin gullinbrúnn og fagur.
Berið fram með hrísgrjónum og salati.
Ólífurnar setja punktinn yfir i-ið.
mbl.is/TM