Í þessum þriðja þætti af Konfektþætti Matarvefjarins keppa þau Halldór Kristján Sigurðsson og Tobba Marinósdóttir um bestu fyllinguna. Í raun voru molarnir nánast á pari enda himneskir báðir. Halldór gerði vinsælustu fyllinguna af súkkulaðinámskeiðunum sínum en Tobba lakkrísostakökufyllingu.
Vinsælasta fyllingin
Sjóða á rjóma upp að suðumarki, hella honum í súkkulaðið í smá skömmtum, möndlum og eða líkjör bætt út í, látið kólna í 2-4 klst. í kæli. Búið til kúlur úr fyllingunni og þrýstið ofan í súkkulaðiskeljarnar.
Lakkrísostakökufylling:
Hrærið rjómaostinum, súkkulaðinu og sírópinu vel saman í hrærivél. Setjið fyllinguna í sprautupoka og inn í kæli. Það er auðveldara að vinna með fyllinguna þegar hún er köld. Sprautið svo í skeljarnar.
Ef þið finnið ekki lakkríssíróp má vel bræða bingókúlupoka með 2 msk. af rjóma og nota.