Bláberjaís ofurkroppsins

Ísinn er sérlega fallegur á litinn og ferskir ávextir setja …
Ísinn er sérlega fallegur á litinn og ferskir ávextir setja punktinn yfir i-ið. Kristinn Magnússon

Guðbjörg Finnsdóttir, ástríðukokkur og eigandi G-Fit, kann sannarlega að reiða fram kræsingar sem enginn þarf að fá samviskubit yfir að borða. Hér erum við að tala um ævintýralega girnilegt góðgæti sem passar vel á aðventunni og ekki síst við hátíðarborðið því það er deyjandi hugsun að hátíðarmatur þurfi að valda brjóstverkjum og öðrum almennum óþægindum.  

Hér gefur að líta bláberjaís sem er svo fallegur að það hálfa væri nóg. 

Bláberjaísinn sem allir elska

  • 3 bananar frosnir í bitum
  • 1 bolli bláber frosin
  • 1 dós grísk jógúrt með vanillu og kókos frá Örnu
  • 1/2 dl rjómi til að auðvelda blandaranum verkið
  • 250 ml þeyttur rjómi
  • 1/4 tsk. vanillu-extract
  • salt á hnífsoddi

Aðferð: 

Allt nema þeytti rjóminn sett í öflugan blandara á við Vitamix þar til blandan er orðin eins og ís. Síðan er rjóma hrært varlega saman við.

Gaman er að setja bláber fyrst í ísformið og síðan hella ísnum yfir.  Gott ísform nauðsynlegt, mæli með ísforminu frá Tupperware. Skreytt með ferskum jarðarberjum.

Hanna Andrésdóttir
Guðbjörg Finnsdóttir varð nýlega fimmtug en skartar engu að síður …
Guðbjörg Finnsdóttir varð nýlega fimmtug en skartar engu að síður kviðvöðvum sem flestar tvítugar konur myndu borga milljónir fyrir. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka