Það er að bresta á með jólum og því ekki úr vegi að fara yfir helstu reglurnar varðandi béarnaise-sósuna góðu. Hér er lykilatriði að fara ekki á taugum. Sósan er vissulega mikilvæg en jólahaldið stendur ekki eða fellur með frammistöðu þinni í sósugerð.
Gott er að horfa á þetta stórskemmtilega kennslumyndband áður en lengra er haldið:
Hér er að finna nokkur skotheld ráð:
Hér má jafnframt finna stórgóða útgáfu:
Og loks er hér skotheld uppskrift:
Béarnaise-sósa
- 5 stk. eggjarauður
- 500 g smjör
- 1 stk. nautateningur eða annar kjötkraftur frá Knorr
- 2 msk. béarnaise-essence
- 1 msk. þurrkað estragon eða 2 msk. ferskt
- salt og pipar
- safi úr hálfri sítrónu
Aðferð:
- Bræðið smjörið með kjötkraftinum.
- Takið af hitanum og leyfið aðeins að rjúka.
- Setjið eggjarauðurnar í hitaþolna skál, stál eða gler.
- Setjið vatn í pott, hleypið upp suðunni og lækkið svo alveg undir.
- Leggið skálina ofan á pottinn, gætið þess að botninn snerti ekki vatnið og þeytið eggjarauðurnar þar til ljósar og léttar.
- Takið pottinn með skálinni af hitanum. Hellið smjörinu mjög rólega saman við eggin í mjórri bunu og þeytið stanslaust á meðan, þetta tekur 5-7 mínútur.
- Kryddið svo með estragoni og béarnaise-essence.
- Smakkið til með sítrónu, salti og pipar.
- Sósan geymist vel undir plastfilmu við stofuhita í 2-3 klst., borin fram stofuheit eða hituð rólega upp yfir vatnsbaði.