Svínapurusteik er eitt það albesta sem hægt er að gæða sér á enda vita Danir fátt betra og Íslendingar greinilega ekki heldur ef eitthvað er að marka vinsældir hinnar dönsku Jómfrúr.
Þessi uppskrift kemur frá Helenu Gunnarsdóttur matarbloggara á GottíMatinn.is og þykir steinliggja!
Svínapurusteik að hætti Helenu
- 1 stk. svínasíða
- 3 stk. lárviðarlauf
- 1 msk. piparkorn
- 1 stk. laukur, skorinn gróft
- 2 stk. teningar af svínakjötskrafti eða 2 msk. svínakraftur
- Flögusalt, t.d. gott sjávarsalt
Aðferð:
- Setjið kjötið í stóran pott ásamt lárviðarlaufum, piparkornum, lauk og kjötkrafti. Hellið vatni yfir þannig að rétt fljóti yfir kjötið.
- Setjið á eldavél og kveikið undir, hleypið suðunni rólega upp (ég nota stillingu 7 af 10). Þegar suðan er komin, lækkið þá vel undir og leyfið kjötinu að malla við vægan hita í um 40 mínútur.
- Hitið ofn í 240°, gjarnan með blæstri.
- Takið kjötið úr pottinum og leggið í fat, puruhliðina upp, leyfið aðeins að rjúka úr því og þerrið með eldhúspappír. Ef það er búið að skera í kjötið, farið þá aftur í rifurnar með beittum hníf, gerið jafnvel fleiri rendur og skerið vel alveg niður að kjötinu. Nuddið svo vel af salti á puruna og passið að fara vel ofan í rifurnar en líka að hafa salt ofan á skinninu.
- Setjið inn í ofn og látið puruna stökkna og „poppast“. Þetta getur tekið 20-40 mínútur. Fylgist vel með kjötinu.
- Fallegt er að skreyta með lárviðarlaufum.