Þessi sósa er algjört dúndur. Hún hentar vel á andasalat í forrétt og er fullkomin með ís, ostatertu eða marens í eftirrétt. Sósan tekur stutta stund í gerð og geymist í nokkra daga í krukku inni í ísskáp.
Fersk sósa sem slær alltaf í gegn!
Bleik kampavínssósa
400 g frosin hindber
40 g hrásykur
1 dl kampavín eða freyðivín. Ég notaði bleikt kampavín, Veuve Clicquot Rose, því það hefur nettan jarðarberjakeim og passar svo vel með berjunum en auðvitað má nota hvað sem er.
Setjið allt í pott og látið malla við lágan hita í klst. Berið sama vín og er í sósunni fram með eftirréttinum!