Þá er tími til að létta aðeins á maganum eftir hám síðustu vikna. Hér er frábært brokkolísalat sem hentar eitt og sér eða með öðrum mat. Brokkolí er ekki bara bragðgott, heldur líka frábært grænmeti fullt af B, C og E-vítamínum ásamt járni, kalki og kalsíum. Notið endilega stöngulinn í þessa uppskrift svo ekkert fari til spillis.
Geggjað brokkolísalat með pekanhnetum (fyrir 4)
- Brokkolí
- 2-3 msk ólífuolía
- Salt og pipar
- 50 g pekanhnetur
- 100 g fetaostur
- 50 g rúsínur
Dressing:
- 2 msk ólífuolía
- 1 msk rauðvínsedik
- 1 msk gróft sinnep
- Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið brokkolí í litla bita og setjið í matvinnsluvél. Hakkið þar til þeir verða fínt saxaðir, næstum eins og hrísgrjón.
- Blandið ólífuolíu, salti og pipar við brokkolíið og dreifið úr blöndunni á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Hakkið pekanhnetur fínt og dreifið út á blönduna.
- Bakið við 185° á blæstri í 10-12 mínútur – hrærið af og til í blöndunni á meðan hún bakast.
- Pískið saman öll hráefnin í dressinguna.
- Leyfið blöndunni að kólna og bætið þá fetaosti og rúsínum saman við. Því næst blandast dressingin saman við salatið.