Ofnbökuð eggjakaka með grænmeti

Ljúffengt og bráðhollt!
Ljúffengt og bráðhollt! mbl.is/Svava Gunnars

Nesti skiptir gríðarlega miklu máli eins og gefur að skilja og við elskum nýjar og ferskar nestishugmyndir hér á Matarvefnum. Svava Gunnars á Ljúfmeti og lekkerheit birti myndir af þessari girnilegu eggjaköku sem er ofnbökuð og alveg einstaklega heppileg sem nesti að hennar sögn.

Svava fer gaumgæfilega yfir aðferðina en minnir á að hér má nota hvað sem hugann dreymir um og svo er svo snjallt að setja afgangana saman við.

„Fyrir nokkrum vikum fékk ég uppskrift hjá vinkonu minni að svo frábæru nesti sem hún hafði gert sér og mér leist svo vel á. Ég er oftast með nesti með mér í vinnunni og finnst því gott að eiga í frystinum til að taka með mér. Ég hef oft gert linsubaunasúpur og fryst í passlegum skömmtum en þessi eggjakaka er góð tilbreyting frá súpunum.

Þetta er í raun engin nákvæm uppskrift heldur er grænmeti sem þér þykir gott eða átt til steikt á pönnu og kryddað eftir smekk. Grænmetið er síðan sett í eldfast mót, nokkrum eggjum er hrært saman og svo hellt yfir grænmetið. Það er líka t.d. hægt að setja ost yfir eða fetaost í eggjahræruna. Þetta er síðan sett inn í ofn þar til eggjahræran er orðin passlega elduð.

Ég var með sæta kartöflu, papriku, brokkólí, sveppi og rauðlauk í minni eggjaköku og kryddaði grænmetið með ítalskri hvítlauksblöndu frá Pottagöldrum. Þegar eggjakakan kom úr ofninum skar ég hana í sneiðar og frysti. Á morgnana tók ég svo bara eina sneið með mér sem ég hitaði aðeins í örbylgjuofninum áður en ég borðaði hana í hádeginu. Einfalt, hollt og gott!“

Hver slær hendinni á móti svona góðgæti?
Hver slær hendinni á móti svona góðgæti? mbl.is/Svava Gunnars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert