Sjúklegt Kardashian-eldhússkipulag

Allt í röð og reglu hjá Khloe.
Allt í röð og reglu hjá Khloe. mbl.is/Khloe Kardashian

Matarvefurinn hefur einstakt dálæti á skipulagsráðum og flestu því sem viðkemur skipulagi í eldhúsum og búrskápum. Okkur rak því í rogastans þegar við rákumst á þessa umfjöllun Khloe Kardashian um eigið eldhús þar sem hún deilir myndum af sínu afburðaskipulagi.

Það er ekki annað hægt en að dást að skipulaginu (og úrvalinu) í eldhúsinu og ljóst að margir fara hreinlega að skæla af öfund við að sjá þessa dýrð. Nú mögulega fara einhverjir og fjárfesta í merkimiðavélum því skipulag kallar víst á góðar merkingar (og merkivélar).

Morgunkornið er í glærum umbúðum og vel merkt.
Morgunkornið er í glærum umbúðum og vel merkt. mbl.is/Khloe Kardashian
Khloe er stolt af eldhúsinu sínu.
Khloe er stolt af eldhúsinu sínu. mbl.is/Khloe Kardashian
Teskúffan er ekkert slor. Allt merkt og skipulagt.
Teskúffan er ekkert slor. Allt merkt og skipulagt. mbl.is/Khloe Kardashian
Allt merkt og fínt.
Allt merkt og fínt. mbl.is/Khloe Kardashian
Beikonið á sér sinn stað.
Beikonið á sér sinn stað. mbl.is/Khloe Kardashian
Krukkurnar eru kirfilega merktar.
Krukkurnar eru kirfilega merktar. mbl.is/Khloe Kardashian
Og þegar maður er frægur fær maður vodka frá P. …
Og þegar maður er frægur fær maður vodka frá P. Diddy. mbl.is/Khloe Kardashian
Meira að segja vínið er fínt.
Meira að segja vínið er fínt. mbl.is/Khloe Kardashian
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert