Það kann að koma spánskt fyrir sjónir að bjóða upp á eftirréttarpítsu en það er engu að síður ótrúlega vel heppnaður eftirréttur.
Hér gefur að líta uppskrift frá Ölverkshjónunun Laufey og Elvari en botninn er bakaður á hefðbundinn hátt og síðan smurður með Nutella. Eftirréttur sem vekur hvarvetna lukku enda sélega bragðgóður.
Eftirréttapítsa með Nutella
- Súkkulaði- og heslihnetusmjörs Nutella
- nokkur jarðarber
- 1 banani (eða meira ef þarf)
- flórsykur til skrauts
Aðferð:
- Búið til venjulegan pítsubotn.
- Fletjið botninn út og gatið með gafli. Setjið hann á smjörpappír og bakið í ofninum á háum hita (tekur stuttan tíma).
- Látið hann kólna aðeins og smyrjið svo með súkkulaðinu.
- Skerið jarðarber og banana í litla bita og raðið á pítsubotninn. Stráið að lokum flórsykri yfir.
Pizzadeig
- 400 g hveiti, helst „00“
- 250 ml vatn
- 10 g salt
- 1.5 g ger
Aðferð:
- Blandið volgu vatni (við stofuhita) við gerið og leyfið að liggja í 10 mínútur.
- Setjið salt út í vatnið og hrærið vel saman.
- Vigtið hveitið í skál og hellið svo vatninu saman við hveitið og blandið saman.
- Þegar þetta er komið ágætlega saman veltið þessu úr skálinni og hnoðið á borði í 10 mínútur.
- Setjið aftur í skálina og látið hefast í 1 klukkustund við stofuhita.
- Takið deigið aftur úr skálinni og skiptið í þrennt og mótið kúlur úr því.
- Geymið kúlurnar undir rökum klút í minnst 2 tíma en allt að 4 tímum.
- Stillið ofninn á hæsta hita og hafið blástur á. Setjið ofnplötu neðst í ofninn sem snýr öfugt. Kveikið á ofni 40 mínútum áður en pítsa er sett inn. Gott er að setja pítsuna á smjörpappír og trébretti áður en hún fer í ofn.
Skemmtilegur eftirréttur.
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir