Sætkartöflur eru stórkostlegt fyrirbæri enda bæði bragðgóðar og hollar sem er augljóslega mjög eftirsóknarvert.
Þessi útfærsla á sætkartöflum er sú vinsælasta á Pinterest enda lítur hún sérlega girnilega út.
Sætkartöflumeðlæti
- 4 meðalstórar sætkartöflur (eða 3 stórar)
- ólífuolía
- 3 msk bráðið smjör
- 4 hvítlauksgeirar, maukaðir
- 1 msk fersk nýsöxuð steinselja
- sjávarsalt og svartur pipar
- 2 msk parmesan ostur
Aðferð:
- Skerið endana af sætukartöflunum og skerið síðan kartöflurnar í sneiðar - um það bil 3-4 sm þykkar.
- Suða: setjið sætkartöflurnar í stóran pott með söltuðu vatni. Sjóðið í 20-25 mínútur eða þar til hægt er að stinga í þær með gaffli. Hellið vatninu af.
- Bakstur: raðaðu sætkartöflusneiðunum á ofnplötu og bakaðu í 25-30 mínútur á 180 gráðum. Takið úr ofninum og látið standa í fimm mínútur eða svo á meðan kartöflurnar kólna.
- Setjið bitanna á smjörpappír og fletjið þá út með gaffli - en gerið það mjög laust þar sem kartöflurnar eru gegneldaðar og því auðvelt að mauka þær.
- Blandið saman smjöri, hvítlauk og steinselju. Hellið blöndunni jafnt yfir kartöflurnar og kryddið að lokum með salti og pipar. Úðið eða slettið olíunni yfir.
- Grillið kartöflurnar í ofninum þar til þær eru orðnar gylltar og stökkar eða í 15 mínútur (fylgist vel með þeim). Takið þá úr ofninum og sláldrið parmesan ostinum yfir. Kryddið enn meira með salti, pipar og steinselju og berið fram.
Heimild: Cafe Delites