Það er nú einmitt markmið okkar og þessi uppskrift er ekkert sérlega hefðbundin ef út í það er farið. Hér leikur kaffi stór hlutverk í bland við magnaða kryddblöndu og svo auðvitað úrvals hráefni. Við gefum ykkur frjálsar hendur með af hvaða dýrategund rifin eru en hér á landi er alla jafna auðveldast að verða sér út um svinarif.
Þessi uppskrift er verðugt laugardagsverkefni og því ekki seinna vænna en að skella sér út í búð byrja að undirbúa.
Uppskift af rifjum sem ærir óstöðuga
- 80 gr vel ristaðar kaffibaunir
- 60 ml svört piparkorn
- 4 msk sjávarsalt + auka
- 4 msk reykt sjávarsalt
- 2 msk reykt paprikukrydd
- Ólífuolía
- 2-2,5 kg rif
- Dijon sinnep (valfrjálst)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 260 gráður.
- Malið kaffibaunirnar mjög gróft og leggið til hliðar. Malið einnig piparkornin og sjávarsaltið – ekki of mikið þó. Blandið kaffinu saman við saltið og piparinn og bætið reyktu paprikunni saman við.
- Leggið rifin á smjörpappír og penslið með ólífuolíu. Stráið síðan kryddblöndunni yfir. Nuddið með höndunum. Kjötið á að hafa þykkt lag af kryddhjúpi á sér.
- Grillið í ofninum í tíu mínútur og takið svo út. Lækkið hitann í 150 gráður.
- Setjið rifin á tvöfalt lag af álpappír. Vefjið rifin inn í álpappírinn og passið upp á að hvergi sé rifa. Setjið alla pakkana inn í ofninn á ofngrind og skerið nokkur lítil göt neðst á hvern pakka til þess að vökvinn geti lekið út. Setjið ofnskúffu undir til að grípa vökvann. Eldið í fjórar klukkustundir.
- Eftir fjórar klukkustundir skal lækka hitann niður í 100 gráður og elda þannig næstu 7 tímana. Á þessu tímabili má vel athuga ástand kjötsins einu sinni eða tvisvar. Ef kjötið fellur ekki af beinunum eftir 7 tíma skal hækka hitann í 150 gráður og elda kjötið í 1-2 tíma til viðbótar.
- Þegar rifin eru tilbúin skal sáldra sjávarsalti yfir þau og borða með ögn af úrvals Dijon sinnepi.
Uppskrift: Food52