Nýjasti veitingastaður landsins opnar á morgun kl. 18:00 en hann er staðsettur við Strandgötu 34 í Hafnarfirði sem opnar á morgunn. KRYDD er staðsettur í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar og er sérlega glæsilegur í útliti enda Hafnarborgin eitt fallegasta hús landsins.
Það eru þrenn hjón; þau Hilmar Þór Harðarson, Hulda Heiðrún, Signý Eiríksdóttir, Jón Tryggvason, Hafsteinn Hafsteinsson og Geirþrúður Guttormsdóttir sem standa að baki KRYDD en eldúsið verður opið frá 12 til 22 en barinn og staðurinn verða opin lengur.
Hafnfirðingar og nærsveitungar geta því glaðst en við munum fjalla nánar um matinn á KRYDD á næstunni.
Facebook: KRYDD veitingahús
Instagram: kryddveitingahús
Heimasíða: kryddveitingahus.is