Þessi uppskrift er sérlega spennandi þar sem hún blandar saman ólíkum áhrifum á snilldarhátt. Hægt er að skipta út laxi fyrir annan fisk ef þið viljið og þá kemur í raun hvaða fiskur sem er til greina en þorkshnakkar væru sérlega álitlegur kostur.
Grillaður lax með karamellusósu að víetnömskum hætti
Handa fjórum
- 800 g laxaflak, skipt í 4 bita
- 1 msk ólívuolía
- salt og nýmalaður pipar
- 3 msk sojasósa
- 3 msk fiskisósa
- ½ bolli púðursykur
- 1 tsk rifið engifer
- safi úr einni límónu
- soðin hrísgrjón
- lófafylli ferskt kóríander, saxað
- 3 - 4 vorlaukar, sneiddir
- 1 rauður chilípipar, saxaður smátt, kjarnar fjarlægðir
- nokkrir límónubátar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 220°C. Leggið laxabitana á bökunarpappír eða álpappír, snúið roðhliðinni niður, og penslið með olíunni, stráið salti og pipar yfir. Grillið í ofninum í 11 – 12 mínútur.
- Hitið sojasósu, fiskisósu, púðursykur, engifer og límónusafa við meðalhita á pönnu. Hrærið í þar til sykurinn hefur bráðnað og blandan er orðin sírópskennd.
- Berið laxinn fram á hrísgrjónabeði. Dreifið sósunni yfir ásamt kóríander, vorlauk, chilí og límónubátum.
Uppskrifti: Food52