Galdurinn við þessa dásemdar uppskrift hér að neðan er chorizo pylsan. Bæði gefur hún skemmtilegt bragð sem kallast á við hófstemmdara bragð sjávarfangsins en svo gefur hún líka frá sér lit sem fer súpunni ákaflega vel.
Það er í rauninni alveg sama hvaða sjávarfang er notað í upprskriftina svo lengi sem það er hvítt. Hér má því alveg gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Njóttu vel því fátt er betra á fallegum degi en dásamlega vel heppnuð sjávarréttasúpa.
Mögnuð sjávarréttasúpa sem er stútfull af góðgæti
(handa fjórum)
- 1 tsk smjör
- 1 msk ólífuolía
- 60 g spænsk kryddpylsa
- 1 laukur, smátt saxaður
- 1 tsk reykt paprika
- 1 blað lárviðarlauf
- 2 greinar ferskt timjan
- 1 stór kartafla, skorin í litla teninga
- 3-3 ½ bolli sjávarfang
- 1 tsk salt
- ½ tsk nýmalaður svartur pipar
- 1/2 bolli smátt skorið chilí roasted red peppers (ekki alveg viss - spyrja kokkinn)
- ½ kg fiskur (t.d. þorskflak, ýsa, lúða)
- ½ - 1 bolli rjómi
- 2 tsk graslaukur (til skrauts)
AÐFERÐ:
- Hitið smjör og olíu á stórri pönnu, steikið pylsuna og eldið þar til hún er orðin stökk. Færið hana yfir á eldhúspappír og látið fituna renna ef henni.
- Látið saxaðan laukinn mýkjast við lágan hita í olíu á pönnu. Bætið út í papriku, lárviðarlaufi og kartöflum. Bindið timjangreinarnar saman, látið út í og festið endann á bandinu við pönnuskaftið. Gæði þess að vökvi sé nægur til að hylja karflubitana. Lækkið hitann og látið malla þar til kartöflurnar eru mjúkar, u.þ.b. 10-15 mín. Saltið og piprið eftir smekk og bætið smátt skornu chilí út í.
- Leggið fiskiflakið í heilu lagi ofan á og látið sjóða þar til auðvelt er að skera fiskinn í bita (4-6 mín). Þegar fiskurinn er eldaður má fjarlægja lárviðarlaufið og timjangreinarnar og bæta út í rjóma eftir smekk.
- Ausið réttinum í skálar og dreifið yfir pylsubitunum og söxuðum graslauk.
Uppskrift: Food52