Gordon Ramsay er enginn aukvisi þegar kemur að því að elda góðan mat og þessi uppskrift kemur úr bókinni Gordon Ramsay´s Ultimate Fit Food sem inniheldur bara fitness uppskriftir - eða hollustu uppskriftir ef þið viljið frekar kalla það því nafni.
Þessi fiskréttur er algjört sælgæti - þið vara verðið að prófa.
Fitness fiskur Gordon Ramsay
- ½ msk matarolía – til steikingar
- 2 laukar, skornir í fínar sneiðar
- 2 tsk sinnepsfræ
- 1 tsk túrmerik
- 1 tsk cumin (broddkúmen)
- 3 cm ferskt engifer, skrælt og rifið
- 1-2 chili, fræhreinsað og fínt saxað
- 1 dós kókosmjólk, fituskert
- 1-2 msk tamarind mauk
- 1 eggaldin, skorið í munnbita
- 2 gulrætur, skornar í munnbita
- 200 g grænar baunir (í belg), skornar í tvennt
- 600 g hvítur fiskur sjávarsalt og ferskur pipar
AÐFERÐ
- Takið lágan stóran pott eða djúpa pönnu og setjið á miðlungs hita. Hellið olíunni á pönnuna.
- Þegar pannan er orði heit skal setja laukinn á pönnuna ásamt salti og steikja í 8-10 mínútur eða þar til hann er orðinn mjúkur í gegn.
- Bætið kryddunum við og haldið áfram að elda í mínútu til viðbótar eða þar til ilmurinn er kominn. Þá skal bæta engifer og chili saman við og hræra reglulega í mínútu.
- Hellið kókosmjólkinni, tamarind maukinu og 400 ml af vatni saman við. Kryddið með salti og pipar, hrærið vel og látið suðuna koma upp.
- Þegar sósan er farin að sjóða skal bæta eggaldin saman við og elda í 5 mínútur til viðbótar, þá skal setja gulræturnar saman við og sjóða í 5-10 mínúturnar eða þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar og sósan er farin að þykkna.
- Bætið grænu baununum við og eldið í 3 mínútur viðbótar og að síðustu skal bæta fiskinum saman við.
- Hrærið vel þannig að fiskurinn hjúpist vel með sósunni og látið svo malla í 3-4 mínútur eða þar til fiskurinn er orðinn eldaður.
- Kryddið til eftir smekk og berið fram með brúnum hrísgrjónum. Ekki er verra að strá kókosflögum yfir réttinn áður en hann er borðaður.