Sú var tíðin að aspas var eingöngu borðaður niðursoðinn hér á landi en nú er tíðin aldeilis önnur og töluvert úrval af þessu sælgæti til í verslunum. Hér gefur að líta sérlega huggulegan partýrétt sem ætti að slá í gegn í hvaða boði sem er. Aspasinn er hér með bæði brie-osti og smjördeigi og má færa nokkuð sannfærandi rök fyrr því að gott boð verði enn betra með kræsingum sem þessum.
Unaðsleg aspasstykki
- 1 pakki frosið smjördeig
- 1 ½ - 2 búnt lítill aspas
- 1 ½ brie
- 2 msk. olía
- salt og pipar
- 1 egg
- 2 msk. hunang
- 1 tsk. vatn
- 1 tsk. timjan
Aðferð:
- Þíðið smjördeigið og skerið það í helminga svo hver hluti verður að jafnhliða ferhyrningi. Kveikið á ofninum og stillið á 190 C. Skerið brie-inn í sneiðar (ca. 1/2 cm þykkar) og leggið ofan á smjördeigið á ská.
- Veltið aspasnum upp úr olíu, salti og pipar, skiptið svo aspasnum á milli smjördeiganna og leggið ofan á brie-inn. Vefjið endum smjördeigsins utan um aspasinn og klípið deigið vel saman.
- Hrærið eggið saman og penslið því á smjördeigið. Bakið stykkin inni í ofni í um það bil 20 mín. eða þangað til smjördeigið er orðið vel púffað og byrjað að dökkna fallega.
- Hrærið örlitlu vatni saman við hunangið til þess að gera það auðveldara að smyrja með því, hrærið timjani saman við og smyrjið því á heit stykkin.