Margir mikla það fyrir sér að grilla fisk enda á hann það til að fara í sundur og oftar en ekki endar hann á kolunum. Matarvefnum barst ábending frá lesanda sem sagðist hafa fundið hina fullkomnu grillmottu fyrir fiskunnendur en mottan var keypt í Blómavali og kostaði í kringum 1.000 krónur.
„Ég keypti þessa mottu í Blómaval fyrir 1000 kall. Hún gerir allan gæfumuninn við að grilla fisk. Hann hrynur ekki í sundur og allur álpappír er úr sögunni. Það er líka mjög sniðugt að grilla marinerað kjöt á mottunni en þá kviknar síður í marineringunni. Svo er mottan bara skoluð. Umhverfisvænt! Enginn álpappír og meira grillbragð.“
Þar höfum við það...