Þrátt fyrir að vera oft á tíðum titlað hjarta heimilisins þá er eldhúsið ekki eini staðurinn þar sem fjölskylda og vinir hópast saman til að gæða sér á góðum mat, spjalla og njóta samveru. Í borðstofu hefur margur gert sér glaðan dag í gegnum tíðina, hvort sem það er í fjörugum matarboðum, fermingarveislum nú eða bara á afslöppuðu föstudagskvöldi, með tilheyrandi pizzu-áti. Ef að borðstofan er falleg og notaleg eru einfaldlega meiri líkur á að fólk nenni að hanga þar. Við skoðum hér fimm fallegar borðstofur þar sem ekki væri leiðinlegt að tylla sér yfir góðri máltíð og fjörugum samræðum.
Í þessari björtu og fallegu borðstofu eru hvítmálaðir veggir og náttúrulegir jarðlitir allsráðandi.
mbl.is/pinterest
Það er eitthvað svo hressandi við bleika borðstofu. Pappaluktirnar sem hanga yfir borðstofuborðinu setja líka skemmtilegan svip á rýmið.
mbl.is/AnthologyMag
Það má nú vel kikna í hjánum yfir þessu fiskibeinaparketi. Smaragðsgrænir flauelsstólar og fölbleikir glerkúplar fara svo afar fallega saman.
mbl.is/Høeg+Møller
Dökkbláir veggir og eiturbleikt neon ljós, svínvirkar. Húsgögnin eru svo óður til sjötta áratugarins og smellpassa inn í rýmið. Það væri nú ekki leiðinlegt að fá sér eina pönnuköku með rjóma og ræða heimsmálin í þessari borðstofu.
mbl.is/ApartmentTherapy