Ostakökur eru eitt það alsnjallasta sem hægt er að bjóða upp á í betri veislum. Hér gefur að líta tvöfalda dásemd sem er svo einföld að allir ráða við hana – ekki síst þegar hægt að að horfa á eitursnjallt myndband sem sýnir réttu handtökin.
Tvöföld segi ég ... því þetta er ekki eingöngu ostakaka heldur er hrístoppur ofan á henni og ef það er eitthvað sem slær í gegn við hvert tilefni er það einmitt slíkt sælgæti.
Ostakaka með hrístoppi
- 300 g hafrakex
- 100 g smjör
- 400 g rjómaostur
- 200 g flórsykur
- ½ lítri rjómi, þeyttur
- 2 tsk. vanillusykur
Rice crispies-toppur
- 75 g ósaltað smjör
- 150 g suðusúkkulaði
- 6 msk. síróp
- 5 bollar Rice Krispies
Skreyting
Aðferð:
- Myljið hafrakexið í blandara þangað til það er orðið að fínu mjöli.
- Bræðið smjörið og blandið því saman við kexmjölið.
- Takið stórt smelluform, 24 cm í þvermál, setjið smjörpappír í botninn og lokið forminu.
- Þrýstið kexblöndunni í botninn á forminu og setjið í frysti.
- Rjómaostur er hrærður. Flórsykrinum og vanillusykrinum er blandað saman við.
- Þeytið rjómann og blandið honum svo varlega saman við rjómaostablönduna með sleikju. Hellið deiginu í formið, sléttið toppinn á kökunni og setjið í frystinn. Geymið kökuna í minnst 3-4 tíma í frystinum, líka gott að gera með nokkurra daga fyrirvara ef þannig stendur á.
- Takið kökuna úr frystinum og leyfið henni að jafna sig í klukkutíma, á meðan er rice crispies-toppurinn útbúinn.
- Bræðið varlega saman súkkulaði, smjör og síróp. Bætið rice crispies saman við og blandið vel saman. Setjið rice crispies-ið ofan á kökuna.
- Skreytið kökuna með skornum kirsuberjum og bræddu hvítu súkkulaði.