Lambið er sívinsælt á grillið og skyldi engan undra. Hér gefur að líta grillað lamb með snilldarmeðlæti en það er kartöflusalat sem leynir verulega á sér og gremolata.
Það er meistari Hafliði Halldórsson sem á heiðurinn að uppskriftinni og eins og við er að búast er þetta algjör negla.
Grillað lamb með gremolata og kartöflusalati
- 1 pk. lamba-innra læri u.þ.b. 300 gr.
- 3 msk. repjuolía
- ½ brokkoli haus, skorinn gróft
Aðferð:
- Brúnið kjötið á heitu grilli í tvær mínútur á hvorri hlið og setjið á efri hillu á grillinu, lækkið í meðalhita og lokið grillinu.
- Eldið í u.þ.b. 20 mín. þar til það nær 58 °C í kjarnhita. Mæli með notkun á kjarnhitamæli!
- Takið af grillinu og hvílið við stofuhita í 10 mín.
- Berið ríflegt magn af gremolata á kjötið áður en það er borið fram.
- Grillið brokkoli og berið fram ásamt ferskri tómatasósu.
Kartöflusalat
- 400 gr. soðið kartöflusmælki
- 100 gr. grænar ólífur
- 2 msk. kapers
- 1 msk. dijon
- 1 msk. hunang
- 4 msk. ólífuolía
- 2 msk. ítölsk steinselja
- klípa af salti
Gremolata
- 1 búnt ítölsk steinselja
- 1 geiri hvítlaukur
- Sítrónubörkur af 2 sítrónum
Saxið steinseljuna gróft, rífið hvítlauk og sítrónubörk á fínu rifjárni og blandið saman.
Tómatasósa
- 1 msk. olía
- ½ laukur skorinn í teninga
- 1 hvítlauksrif, smátt skorið
- 2 pakkar ferskir konfekttómatar
- 1 stk. hunang
- svartur grófmulinn pipar
- salt
Svitið lauk og hvítlauk á hægum hita í 2 mín., bætið tómötunum við og látið sjóða í 10 mín., bætið við hunangi og smakkið til með svörtum pipar og salti. Maukið í matvinnsluvél.
Hafliði Halldórsson er afburðagrillari og kann vel á lambið.
mbl/Arnþór Birkisson