Það er alltaf góð hugmynd að fá sér köku... ekki síst ef téð kaka er frönsk og borin fram volg. Hér gefur að líta útgáfu Bragans bar & bistró sem opnaði í Nauthólsvík á dögunum.
Volg frönsk súkkulaðikaka
Þessi kaka er borin fram með hindberjasósu.
- 2 bollar hveiti
- 2 bollar sykur
- 2/3 bollar kakó
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. matarsódi
- 1 tsk. gróft salt
- 1½ bolli mjólk
- ½ bolli grænmetisolía
- 2 stór egg
- 2 msk. vanilluextrakt
Toppur
- 1½ tsk. óbragðbætt gelatín
- 2 msk. kalt vatn
- 1 bolli sykur
- ¾ bollar kornsíróp
- 3 stórar eggjahvítur
- ½ vanillustöng, skorin í tvennt og fræin skröpuð úr
Aðferð:
- Hitið ofninn í 160°C. Smyrjið tvö kassalaga form sem eru 20x20 cm. Setjið bökunarpappír í botninn, smyrjið hann og stráið hveiti inn í. Hristið afganginn af hveitinu úr.
- Hrærið saman hveiti, sykur, kakó, lyftiduft, matarsóda og salt í stórri skál.
- Hrærið saman í annarri skál mjólk, egg og vanillu. Bætið blautu efnunum við þurrefnin og hrærið þar til það rétt blandast saman.
- Setjið í formin og bakið í um 40 mínútur. Kælið í formunum á grind í smátíma og takið síðan úr formunum til að kakan kólni alveg.
- Setið gelatínið í kalt vatn og látið standa þar til það mýkist, eða í um fimm mínútur.
- Blandið saman ½ bolla af sykri og kornsírópi í potti og hrærið yfir meðalhita þar til sykurinn leysist upp. Hitið án þess að hræra þar til blandan nær 120°C eða í um tíu mínútur. Takið af hitanum og blandið gelatíninu við.
- Á meðan þetta er að hitna stífþeytið þá saman eggjahvítur, vanillu og sykur. Bætið sykrinum út í smám saman og þeytið þar til hvíturnar verða stífar og glansandi, eða í um fimm mínútur.
- Hellið heitri kornsírópsblöndunni út í eggjahvíturnar og hrærið stöðugt á meðan, þar til blandan er orðin þykk, eða í um átta mínútur.
Kveikið á grillinu í ofninum. Dreifið blöndunni ofan á kökurnar. Látið standa í um mínútu. Grillið síðan kökurnar undir grillinu í ofninum þar til þær brúnast, eða í um fimm mínútur. Snúið eftir þörfum svo kökurnar grillist jafnt. Berið fram heitt.