Ef þig langar að slá vel um þig í næsta matarboði mælum við með þessari uppskrift en hér gefur að líta dásamlega blöndu af skyrfroðu, bláberjakrapi, hvítsúkkulaðiostakremi og hafra-crumble.
Fyrir þá sem eru ekki þegar búinir að ákveða að bjóða upp á þennan rétt við fyrsta tækifæri þá má þess geta að hann kemur úr smiðju Einsa kalda í Vestmannaeyjum og maturinn þar þykir afburðagóður.
Skyrbúðingur og bláber
Fyrir sex
Skyrfroða
- 200 ml mjólk
- 200 g skyr hreint
- 150 g flórsykur
- lime-safi
Aðferð:
- Þeytið mjólk, skyr og flórsykur saman. Bætið lime-safa saman við.
- Hellið þessu svo í rjómasprautu og notið 3-4 gashylki til að ná réttri áferð. Þá er hægt að sprauta þessu í ílát. Geymið í kæli yfir nótt.
Bláberjakrap
- 100 g sykur
- 50 g glúkósi
- ½ l bláberjasafi
- 150 ml vatn
Aðferð:
- Hitið í potti að suðu.
- Bætið því næst við 4 g af þykkingarefni og hrærið saman með töfrasprota.
- Nauðsynlegt er að gera þetta daginn áður og frysta.
Hvítsúkkulaðiostakrem
- 125 g rjómaostur
- 125 g mascarponeostur
- 80 g sykur
- 175 g hvítt súkkulaði
- 120 g þeyttur rjómi
Aðferð:
Bræðið saman yfir vatnsbaði ost, sykur og súkkulaði. Þeytið rjóma og blandið honum varlega saman við með sleikju.
Hafra-crumble
- 100 g haframjöl
- 250 g sykur
- 200 g hveiti
- 150 g smjör við stofuhita
- kanilstöng
Aðferð:
Blandið öllu saman og dreifið á bökunarpappír. Bakið í 20 mínútur á 160°C.