Hér gefur að líta eftirrétt sem er svo girnilegur að annað eins hefur vart sést. Ef þið eruð ekki viss er best að horfa á myndbandið en þessi snilld er einn af Hraðréttum Matarvefsins sem við erum svo ógnar stolt af.
Súkkulaðibökur með ís og súkkulaðisósu
fyrir 10
Botninn:
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Myljið kexið í matvinnsluvél eða með kökukefli í plastpoka. Bætið smjöri út í og blandið vel saman. Smyrjið smelluform (24 cm) eða ofnfast bökuform með olíu eða smjöri og fóðrið það að innan með kexmylsnunni. Einnig er gott að nota múffu silikonform. Bakið deigskelina í 10 mín.
Fylling:
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði. Hellið rjómanum í skál. Bætið eggjum út í einu í einu og síðan vanilludropum. Hellið súkkulaðinu út í og pískið létt saman. Hellið fyllingunni í bökuskelina og bakið áfram í 20 mín. Berið fram strax eða kælið og hitið augnablik áður en þið berið fram.
Súkkulaðisósa:
Sjóðið allt saman í potti við vægan hita.
Meðlæti:
Setjið kökur á fallega diska. Stráið berjum í kring. Setjið kúlu af Häagen-Dazs ís ofan á hverja köku. Setjið súkkulaðisósuna ofan á ísinn og berin allt um kring.