Það er hægt að búa til krapdrykk úr næstum hverju sem er, og það þykir mjög móðins að súpa á frosnum drykk í sumarhitanum. Nýjasta æðið er Frosé en það er frosið rósavín sem búið er að gera krapdrykk úr. Þá er ekkert annað eftir en að slá um sig í næsta saumaklúbb eða matarboði og bjóða upp á rósavínskrapdrykk. Svona förum við að:
Frosé krapdrykkur
- 1 flaska rósavín
- 120 ml Fentiman-rósalímonaði einnig er hægt að notast við venjulegt límonaði.
- Ísmolar
- Ein grein af lofnarblómi eða rósmarín til skrauts
Aðferð
- Hellið úr einni flösku af rósavíni í klakabox og frystið yfir nótt.
- Setjið frosna rósavínið ásamt límonaði í blandara með handfylli af ísmolum.
- Blandið þar til allir ísmolarnir eru komnir í krap.
- Hellið í fallegt glas og stingið grein af lofnarblómi eða rósmarín í glasið.
- Einfaldara verður það ekki.
Það er hægt að búa til krapdrykk úr næstum hverju sem er og er í flestum tilfellum afar auðvelt.
mbl.is/stylemepretty