Pastasósa a la Kardashians (fyrir 2-4)
- 2 msk. extra ólífuolía
- 4 hvítlauksrif, smátt söxuð
- 1 lítill laukur, saxaður
- 1 tsk. púðursykur
- 1 dós San Marzano-tómatar
- 1 bolli vatn
- Salt og pipar
- ½ bolli af saxaðri ferskri basiliku
- Pasta eða spaghetti að eigin vali
Aðferð
- Hitið ólífuolíuna á miðlungshita þar til hún er orðin heit.
- Bætið við lauk og hvítlauk og veltið um (í nokkrar mínútur) þar til laukurinn er orðinn glær.
- Bætið tómötunum og helmingnum af vatninu við, hrærið í annað slagið í sirka 3-5 mínútur.
- Púðursykur, salt og pipar og smakkið til.
- Lækkið hitann og leyfið sósunni að malla í 5 mínútur. Ef ykkur finnst sósan verða of þykk má bæta við smávegis af vatni.
- Takið sósuna af hellunni og bætið basilikunni við.
- Berið fram með uppáhaldspastanu ykkar eða spaghetti.