Smjördeigssnittur eru fljótlegar og einfaldar í framkvæmd og tilvaldar í kaffitímann. Þessar eru með marsipani og plómum, en við mælum einnig með að bera fram vanilluís með snittunum – það mun aldrei skemma fyrir.
Smjördeigssnittur með marsipani og plómum
- 300 g smjördeig
- 150 g marsipan
- 6 plómur
- 1 tsk. vanilluduft
- 2 msk. hunang
- 1 eggjarauða til að pensla
- 50 g möndluflögur
Aðferð:
- Stillið ofninn á 175°. Skerið smjördeigið í 12 ferninga og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Rífið marsipanið gróft niður með rifjárni og dreifið jafnt yfir smjördeigið, en leyfið köntunum að halda sér.
- Skolið plómurnar og skerið niður í þunnar sneiðar. Leggið þær í skál og veltið þeim upp úr vanilludufti og hunangi. Dreifið sneiðunum ofan á marsipanið.
- Penslið kantana með eggjarauðu og dreifið möndluflögunum yfir.
- Bakið smjördeigssnitturnar í ofni í 15-20 mínútur, þar til kantarnir eru orðnir fallega gylltir.