Einfaldasta helgarsteikin

Þessi steik er alveg hreint til fyrirmyndar.
Þessi steik er alveg hreint til fyrirmyndar. mbl.is/Bon Appetit

Und­ir­rituð hef­ur ekki farið leynt með ást sína á "flank"-steik en víða er­lend­is er þessi steik afar vin­sæl en hef­ur reynst erfitt að fá hana hér á landi. Hins veg­ar er hún nán­ast alltaf til í Costco og á ein­hverj­um tíma­punkti var hún fá­an­leg í Búr­inu.

Hér gef­ur að líta upp­skrift að mögu­lega ein­föld­ustu helgarsteik í heimi. Und­ir­bún­ing­ur­inn tek­ur eng­an tíma, eld­un­in sára­lít­inn og út­kom­an er engu að síður framúrsk­ar­andi. 

Einfaldasta helgarsteikin

Vista Prenta

Ein­fald­asta helgarsteik­in

  • Skerið 500 gramma steik í fjóra bita (eða eins og þið viljið hafa þá – sjálf grilla ég þessa steik alltaf í heilu lagi og sneiði svo í þunn­ar sneiðar að hvíld lok­inni).
  • Kryddið með salti og pip­ar.
  • Grillið á meðal-háum hita í fjór­ar mín­út­ur á hvorri hlið. 
  • Látið kjötið hvíla í fimm mín­út­ur. 
  • Skerið í þunn­ar sneiðar og berið fram. 

Heim­ild: Bon App­e­tit

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert