Maður fær sjaldan leið á bananakökum og það er undantekning ef hún fellur ekki í skapið hjá einhverjum í fjölskyldunni. Bananar, kókos og súkkulaði – þríeyki sem klikkar seint.
Bananakaka með kanil og súkkulaði
- 75 g kókosolía, mjúk
- 3 egg
- 3 bananar, þroskaðir
- 100 g möndlumjöl
- 45 g kókoshveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. kanill
- Salt á hnífsoddi
- 1 tsk. vanillusykur
- 75 g dökkt súkkulaði
Aðferð:
- Setjið kókosolíu, egg og banana í matvinnsluvél og blandið saman. Bætið við möndlumjöli, kókohveiti, lyftidufti, salti, kanil og vanillusykri í skál og hrærið saman við kókosolíublönduna í skál.
- Hakkið súkkulaðið gróft og bætið út í deigið.
- Smyrjið bökunarmót og hellið blöndunni í. Bakið við 200° á blæstri í 35-40 mínútur.
- Leyfið kökunni aðeins að hvíla áður en hún er skorin í sneiðar.