Það er fátt sem jafnast á við grillað nan-brauð með gúrme parmaskinku og osti. Þetta er alveg upplagt þegar lítill tími gefst til að elda kvöldmat og er svo glettilega bragðgott.
Grillað naan-brauð með fíkjum, blámygluosti og parmaskinku (fyrir 4)
- 8 lítil eða 4 stór naan-brauð
- 150 g mjúkur blámygluostur
- 6 fíkjur
- 200 g parmaskinka
- 4 stilkar ferskt rósmarín
- Ólífuolía
- Salt og pipar
Aðferð:
- Grillið naan-brauðin í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Takið þau af grillinu og setjið ost, fíkjuskífur, parmaskinku og hakkað rósmarín á brauðin og leggið aftur á grillið í sirka 3-4 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað.
- Dreypið örlitlu af ólífuolíu yfir brauðin áður en þau eru borin fram og smávegis af salti og pipar. Ferskt salat er frábært meðlæti með þessum rétti.
Naan-brauð eru brjálæðislega góð á grillið með parmaskinku og blámygluosti.
mbl.is/Ditte Ingemann