Svona gerir þú alvöruengiferskot

Eitt staup af þessu og þú ert klár inn í …
Eitt staup af þessu og þú ert klár inn í daginn. mbl.is/Pinterest

Það er svo miklu auðveldara en margir halda að útbúa engiferskot. Það er tilvalið að byrja alla morgna á einu svona og fara þannig með fulla orku inn í daginn.

Afar einfalt engiferskot (1,5 l)

  • 200 g sítrónur (sirka 2 sítrónur, helst lífrænt ræktaðar)
  • 200-300 g smátt skorið engifer

Aðferð:

  1. Hreinsið og skrælið engiferið og skerið í litla bita.
  2. Skolið sítrónuna og skerið í skífur.
  3. Látið öll hráefnin sjóða á vægum hita í 45 mínútur.
  4. Takið pottinn af hellunni og leyfið blöndunni aðeins að kæla sig. Sigtið þá vökvann og setjið í kæli.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert