Þetta verður að smakkast! Þessi pastaréttur er hinn fullkomni réttur sem verður ekki auðveldari í framkvæmd. Þeir sem eru ekki hrifnir af sítrónum geta skipt út helmingnum af sítrónusafanum fyrir grænmetiskraft.
Sítrónupasta með basilíku (forréttur fyrir 4)
- 400 g spaghettí
- ½ dl safi úr sítrónu
- smávegis af sítrónuberki
- 1 dl nýrifinn parmesan
- ½ dl ólífuolía
- 1 tsk smjör
- salt og pipar
- 15 basilikublöð
Aðferð:
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum í léttsöltuðu vatni.
- Blandið í skál sítrónusafa, sítrónuberki, olíu, smjöri, parmesan, salti, pipar og helmingnum af basilíkublöðunum (skorin).
- Veltið pastanu upp úr sítrónublöndunni, setjið á diska og skreytið með basilíkublöðum.