Snúðar sem vekja alls staðar lukku

Gulrótasnúðar af bestu gerð.
Gulrótasnúðar af bestu gerð. mbl.is/Valdemarsro

Hvort sem þú bakar þessa fyrir heimilisfólkið, bekkjarafmælið eða mætir með í vinnuna, þá ertu alltaf að gleðja. Mjúkir gulrótarsnúðar munu seint klikka.

Snúðar sem vekja alls staðar lukku

  • 10 g ger
  • 2 dl mjólk
  • 50 g smjör
  • 1 egg
  • 1 tsk hafsalt
  • 50 g rúgmjöl
  • 150 g heilhveiti
  • 150-200 g hveiti

Fylling:

  • 4 gulrætur, soðnar þar til mjúkar
  • 40 g smjör
  • 1 daðla eða 1 msk hunang
  • 1 tsk kanill
  • 1 egg, pískað til að pensla á snúðana

Aðferð:

  1. Deig: Stráið geri yfir mjólk í skál og hrærið í þar til gerið er uppleyst. Bræðið smjör í potti og bætið út í ásamt eggi, salti og rúgmjöli. Hrærið vel saman og bætið því næst hveilhveiti og hveiti smám saman út í á meðan hrært er í deiginu. Deigið á að vera mjúkt en ekki of klístrað. Breiðið hreint viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að taka sig í klukkutíma.
  2. Fylling: Sjóðið gulræturnar þar til þær eru linar og setjið í blandara ásamt öðrum hráefnum. Blandið vel saman.
  3. Samsetning: Rúllið deiginu út í ferning, sirka ½ cm á þykktina, og smyrjið deigið með fyllingunni. Leggið deigið saman til helminga og skerið í sirka 5 cm strimla sem síðan skerast til helminga og snúast hvor upp á annan (sjá mynd). Leyfið snúðunum að hefast á bökunarplötu á bökunarpappír í 15 mínútur. Penslið snúðana með pískuðu eggi og bakið við 175° á blæstri í 16-20 mínútur.
mbl.is/Valdemarsro
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert